14.12.2009 | 16:58
14. desember 2009 - Dómarinn á annarri plánetu.
Það er löglegt að ræna unglingi, keyra með hann uppí sveit, berja hann og beinbrjóta, sparka í og hrækja á, pína á alla kanta og vera sjö til átta saman um verkið. Það var gert löglegt í dag. Mikið lifandis skelfing og ósköp hlýtur þessi dómari að vera menntaður. Og út takti. Og hrokafullur. Réttsýnn er hann ekki. Ekki á hann heldur dóttur sem lenti í þessu. Þá væri harkan meiri.
Þetta er í takt við annað hér á landi. Það er allt í lagi að gera allt nema kannski myrða. Enn er fangelsi við því. Það fer nú að detta úr móð. Við erum svo menntuð. Skilningsrík. Sanngjörn. Svo ofsalega góð við afbrotaómenni. Skilaboðin eru. Krakkar og fullorðnir. Farið á stað, ráðist á eina manneskju, rænið henni og berjið til óbóta. Dómarinn hlær með ykkur í dómsal.
Skammist ykkar. Það þarf að flytja inn erlenda dómara til að halda uppi lögum. Komið ekki með þvæluna að hann hafi dæmt eftir lögum það var ekki gert. Það var löglegt að dæma þessa vitleysingja í 4 ára fangelsi og þótti engum mikið. Nei þeim var sleppt. Það er partý núna og fögnuður og lagt á ráðin um næstu árás.
Dómarinn í þessu máli ber ábyrgð á þessum vitleysingum næstu árin. Verði honum að góðu. Drottinn minn dýri hvað við þurfum að losna við íhaldið úr öllum stöðum. SVEI .
|
Eins og blaut tuska í andlitið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Dómsmál | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Löggæsla | Facebook
Um bloggið
Tryggvi Marteinsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dómsmál
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sjónvarp
- Skák
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 497
- Frá upphafi: 68895
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 459
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


barattan
bjarnihardar
finni
gattin
gunnola
hallormur
hildurhelgas
hordurhalldorsson
hreinn23
karlremba
kolbrunerin
kristjan9
lillo
maggadora
maggib
omarbjarki
rafng
zunzilla

Athugasemdir
Ég vill leiðrétta þig. Það er í lagi að drepa, nauðga, pynda. Ef þú tengist vændi eða fíkniefnum ertu aftur á móti á hálum ís. Þessi dómur er til skammar.
Gunnar (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 17:04
Svo sammála þér. Ég á ekki orð. Þetta eru ljótu skilaboðin sem þeir senda með þessu.
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 14.12.2009 kl. 17:09
Þakka athugasemdir. Sennilega þarf að breyta hér lögum og láta kjósa um saksóknara og dómara. Engan þekki ég sem mælir ofbeldi bót eða telur að nokkru sinni sé nægilega refsað fyrir það nema ofbeldismennina sjálfa og reyndar tvær konur sem hallast að því að allar refsingar séu af hinu slæma. Aldrei nokkurn tíma eigi að dæma menn í refsingu heldur sjá Guð almáttugur um þá deild þegar þar að kemur. Fyrir okkur hin sem erum jarðbundnari dugar það illa. 5-10 ára fangelsi fyrir fyrsta ofbeldisverk og síðan ævilangt ef endurtekið. Flest normalt fólk kemst í gegnum lífið án svona hrottaskapar.
Tryggvi Marteinsson, 14.12.2009 kl. 17:37
Tryggvi. Mikið er ég sammála! Almættið hjálpi þessum unglingum sem ekki hafa fengið siðferðislegt og kærleiksríkt uppeldi sem síðan bitnar svona hryllilrga á öðrum sakausum óhörnuðum unglingum sem er ill-fyrirgefanlegt.
Hver ber ábyrgð á Íslensku uppeldi?
Væri ekki rétt að athuga hvað gerir ungt fólk að slíkum villimönnum? Við getum lokað inni, hegnt og pyntað fyrir svona ódæðisverk, en það gerir ekki uppeldis-siðferðis-reglur á Íslandi betri. Hvar er rót vandans?
Þarf ekki að læra af þessu að uppeldisfræði á Íslandi er ekki að virka? Hver ber ábyrgð á ungu fólki á Íslandi? Ætli það séu sviknir unglingar? Ég held ekki.
Margt ungt fólk á Íslandi er því miður oftar en ekki svikið af brengluðu siðferðis-laga-kerfi Barnaverndarnefnda víðs vegar um landið sem telur sig öruggt í skjóli þagnarskyldu. Svo er Íslenskt dómskerfi stórlega brenglað. Ekki von á góðu að óbreyttu.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.12.2009 kl. 17:50
Getur verið að blessaður dómarinn noti úllen dúllen doff aðferðina?
axel (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 17:56
Hugsiði nú aðeins, er það eitthvað læknandi fyrir þolandann ef þessar stúlkur væru dæmdar í fangelsi ? Auðvitað er ekki í lagi það sem þær gerðu , en er ekki vitrænna að reyna að hjálpa þeim á rétta braut í stað þess að loka þær inni ?
Jón (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 17:58
Það hefði nú alveg mátt dæma þær til að greiða fórnarlambinu skaðabætur, en hitt er annað mál að dómarar dæma eftir þeim lögum sem gilda í landinu. Sé fólk ósátt við dóma er við Alþingi að sakast, sem setur lögin sem dómarar fara eftir.
Púkinn, 14.12.2009 kl. 18:05
Púkinn fer með rangt mál. Dómarinn gat dæmt þær í 0 til 4 ára fangelsi. Hann dæmdi eins og alltaf í 0. Svo vil ég spyrja jón sem greinilega hefur ekki skilið það sem ég sagði. Hjálpa þeim á rétta braut ? Af hverju ? Eru þær ekki á réttri braut ? Mér sýnist að dómarinn hafi sagt þeim að halda áfram og svífast einskis. Það er málið. Þú verður að taka afleiðingum gerða þinna en það er ekki í þessu máli. Enginn agi ekkert.
Tryggvi Marteinsson, 14.12.2009 kl. 18:09
Jón ég er svo sem sammála þér að stelpurnar eigi ekki heima í fangelsi. EN engu að síður þurfa þær að takast á við gjörðir sínar á einhvern hátt. Kannski mætti gera slíkt hið sama við þær eða gera lítið úr þeim fyrir framan alla í skólanum þeirra eða eitthvað álika og athuga svo hvernig þeim liði á sinni sál á eftir.
Gerendur sleppa nefnilega alltaf svo ódýrt að það er ógeðslegt. Og aldrei má segja styggðaryrði við þessa skrattakolla sem gera svona og alls ekki foreldrana því þeir viðurkenna sko ekki svona lagað upp á sín börn. ´Á meðan foreldrar láta svona og taka ekki í börnin sín, læra þau aldrei muninn á réttu og röngu þannig er það bara.
Við sem foreldrar ættum öll að hafa í huga að börnin okkar gætu verið jafnt gerendur sem þolendur og við eigum að bregðast eins við hvort heldur sem þau gera eða lenda í. Ekki hjálpa börnunum að ljúga,hjálpum þeim frekar að bæta sig.
Dómskerfið ráðum við augljóslega ekkert við frekar en annað hér á landi sem viðkemur Ríkinu. Eina sem við getum gert er að bæta okkur og börnin okkar.
Óskin, 14.12.2009 kl. 18:11
Anna
Uppeldisleg vandamál hafa alltaf verið til staðar og verða alltaf til staðar. Fólk er misjafnt.
Síðan getur fólk eins og þessar sjö stelpur gert eitthvað fáránlegt sem þær vita alveg að er rangt. Í ofanálag er siðblinda ekki afsökun þar sem að siðblindir vita oftast muninn á réttu og röngu, þeir hafa bara enga samúð með fórnarlömbum sínum.
Að öllu leyti þá gefur þessi dómur röng skilaboð. Það má hópast saman og misþyrma öðrum. Ef þú ert undir 18 þá er bara smá "skammskamm" og engar afleiðingar. Uppeldi virkar í gegnum orsök og afleiðingu. Gerðu gott og þú færð gott til baka, gerðu slæmt og útkoman er neikvæð. Hérna er það hundsað og þessir einstaklingar eru mjög ólíklegir til að draga nokkurn lærdóm út úr þessu.
Það sem verra er, önnur skítseyði í samfélaginu eru líkleg til að horfa á þennan dóm sem leyfi til að misþyrma öðrum.
Greyið stelpan hefði sennilega fengið meiri nálgun í málinu (náð að vinna úr málum, losna við martraðir o.þ.h.) með því að taka lögin í eigin hendur. Það eru hin skilaboðin úr þessu máli. Þeir sem verða fyrir alvarlegum árásum eiga greinilega frekar að fara að taka lögin í eigin hendur en að fara í gegn um réttarkerfið.
En það passar svosem við önnur ofbeldisverk eins og t.d. nauðgun. Á Íslandi komast þau mál yfirleitt ekkert inn í dómskerfið og þolendur verða bara að sætta sig við að öllum er skítsama. Sama með barnaperrana.
Dómstólar vilja greinilega ekkert frekar en að þolendur taki lögin í eigin hendur.
@Púkinn. Alþingi gefur semsagt veiðileyfi á u.þ.b. hvern sem er?
Ari Kolbeinsson, 14.12.2009 kl. 18:21
eigum við ekki bara að ræna dómaranum og lemja hann í klessu? sjáum hvað yrði dæmt þá. 10 ára fangelsi býst ég við.
Anepo, 14.12.2009 kl. 18:38
Anepo: Reyndar er þar ólíku saman að jafna, þar eð þar yrði um brot gegn valdstjórninni að ræða.
Arngrímur (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 18:43
því miður. En miðað við þennan dómara mundi ég gera það brosandi og passa að hann mundi missa meira en meðvitund. Þetta er helvítis RUGL!
Þurfum að mótmæla dómsmálakerfinu líka! ekki bara icesave.
Anepo, 14.12.2009 kl. 18:47
Lemja dómarann bara. Hlustaði örugglega ekki á nein vitni eða neitt. Kann örugglega ekki neitt í lögfræði heldur. Best að láta Hrönn bara dæma þetta; hún er með þetta á hreinu.
Skellur (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 19:12
Ari. Já ég viðurkenni vannmátt minn gagnvart kerfinu og siðferðisbrengluninni.
En við þurfum öll að leita leiða til að svona lagað hætti. Blessuð stúlkan sem lenti í þessu er að líða fyrir agaleysi og siðferðisbrenglun þessa fámenna þjóðfélags.
Ég bið góðu öflin sem finnast að hjálpa henni að vinna sig í gegnum þetta helvíti sem hún hefur þurft að þola.
Þetta eru að sjálfsögðu kolröng skilaboð sem bara leiða meir illt af sér, þessi dómur. Það er betra að vera án dómara en hafa dómara sem misnota valdið eins og viðgengst á Íslandi bæði fyrr og nú. Við krefjumst dómskerfis sem sýnir réttlæti gagnvart þeim sem minnst meiga sín, svo sem allra annara.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.12.2009 kl. 20:23
Ég og mín fjölskylda erum búin að vera eitt spurningamerki í framan eftir að þessi dómari kvað upp dóm yfir okkur.
axel (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 21:15
Jón, hvernig er verið að hjálpa stúlkunum á rétta braut með því að gera ekkert?
Það er alltaf verið að halda því fram að það sé ekki við dómarana að sakast, heldur þá sem setja lögin.
Sannleikurinn er sá að refsiramminn er aldrei nýttur sama hver alvarleiki brotanna er.
Það er bara farið eftir dómshefð en ekkert pælt í alvarleika og ásetning.
Sama er með morðmál. Ég er búinn að rífast við marga, þar á meðal lögfræðimenntaða menn sem halda að hámarksdómur fyrir morð sé 16 ár.
Svo er allsekki. Ráðuneytisstjóri Dómsmálaráðuneytis staðfesti við mig fyrir nokkrum árum að hámarkið væri lífstíðardómur (alla ævi). Því hefur tvisvar verið beitt í héraðsdómi en allsnarlega mildað í Hæstarétti.
Það snýst allt um að verja glæpamennina en ekki fórnarlömbin, því miður búum við í landi þar sem siðferðisvitundin er ekki á hærra plani en raun ber vitni!
Valgeir Ólason (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 21:46
"Hugsiði nú aðeins, er það eitthvað læknandi fyrir þolandann ef þessar stúlkur væru dæmdar í fangelsi ?"
Veistu Jón ...ég er orðin svo þreytt á að það má aldrei setja þessa krakkaskratta í fangelsi. Kannski er það ekki neitt læknandi fyrir þolandann en það gefur henni viðurkenningu á að hún sé einhvers virði í þjóðfélaginu og það hafi ekki verið í lagi að það hafi verið ráðist á hana. Að sama skapi fá gerendurnir og aðrir unglingar sem eru á villigötum, þau skilaboð að svona hlutir séu ekki liðnir í samfélaginu þrátt fyrir að þau séu ung.
Svona til að undirstrika hvað þessi setning þín þarna er heimsk þá getum við alveg eins hugsað sem svo að fórnalömb morðingja lifna ekki við þó morðinginn fari í fangelsi ...svo til hvers að setja þá inn???
Sigrún (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 21:55
Þakka þér innleggið Valgeir og ég er fullkomlega sammála þér og þetta er það sem ég hef svo oft bent á. Refsiramminn er þarna en hann er ekki nýttur. Það er auðveldast fyrir dómara að sleppa mönnum bara. Það er hægt að sjá þetta í víðara ljósi ef menn vilja og vil ég td. kenna stöðu okkar í dag um þetta agaleysi sem hér ríkir. Eigendur bankanna og þeirra hyski hefði aldrei, aldrei leyft sér að haga sér eins og þeir gerðu ef þeir hefðu átt von á að sitja inni í eina öld eða svo eins og Bandaríkjamenn taka þá. Enda eru við með fleiri brotlega bankaeigendur en Bandaríkjamenn þó við miðum ekki við höfðatölu. Allt vegna þess að hér má allt og allt ætlar af göflunum að ganga ef menn sæta rannsókn. Síðast í gær kallaði fyrrverandi dómsmálaráðherra ! Björn Bjarnason það ofsóknir að Steingrímur J. vildi ath. með hvort ríkið ætti kröfur á þessa kóna. Fyrrverandi dómsmálaráðherra ! Er að undra að illa sé komið.
Tryggvi Marteinsson, 14.12.2009 kl. 21:56
Veröldin er nú ekki alveg svona svört og hvít, þó svo að stelpurnar sleppi allt of vel, er ekkert borðliggjandi að það muni hafa í för með sér að unglingar fara að taka upp á því að berja mann og annann því þeir haldi að þeir sleppi með litlar skammir.
Við skulum ekki gleyma því að gerendur eru 16-17 ára, nýskriðnir úr grunnskóla, annsi viss um að margir hérna hafi gert heimskulega hluti, ólöglega eða löglega þegar þeir voru 17 ára, vonandi ekki jafn ótrúlega gróft og þetta en þið skiljið hvað ég á við, þetta eru bara unglingar, og persónulega finnst mér ekki rétt að láta eitthvað sem þú gerðir 17 ára gamall þurfa að fylgja þér og há þér restina af lífinu þínu. Þó svo að þetta mun trúlega há þeim á sálrænan máta restina af lífinu þeirra. Þó svo að þær séu að sleppa allt of vel, með allt og grófan hlut, þau tel ég ekki að lausnin sé að dæma 17 ára unglinga, sem hafa alrei gerts sekar um neitt áður, í fangelsi, og þannig gera möguleika þeirra í framtíðinni að næstum engu.
Það að dæma fólk í fangelsi, nýta refsiramman, auka refsingu hefur næstum aldrei reynst vel fyrir neitt land, besta dæmið er BNA sem ákvað að stækka refsiramman fyrir annsi mörg brot, byrjaði að nýta vel lífstíðarfangelsisdóma, afraksturinn varð samasem engin breyting á glæpatíðni og fangelsin yfirfylltust.
Tryggvi (IP-tala skráð) 15.12.2009 kl. 00:04
Já endilega! Lokum börn með hreina sakaskrá inni eftir fyrsta brot. Það er gáfulegt! Eins gott að fara að byggja nokkur fangelsi þá!
Páll Geir Bjarnason, 15.12.2009 kl. 00:26
"Lokum börn með hreina sakaskrá inni eftir fyrsta brot."
Vá, þetta er frábær athugasemd. Voru þær ekki örugglega að stela geisladisk úr Skífunni? Nei, bíddu..... þær RÆNDU MANNESKJU OG RÉÐUST Á HANA!
Það er kannski ekki beinlínis einhver týpísk heimskupör unglinga, ha?
Að þér skuli detta í hug að láta svona vitleysu út úr þér.
Jón Flón (IP-tala skráð) 15.12.2009 kl. 01:06
Jú reyndar finnst mér það akkúrat heimskupör unglinga Jón Flón. En hér vaða fram á ritvöllinn snillingar sem krefjast fangelsisvistar fyrir slíkan kjánaskap. Auðvitað er þetta ömurlegt mál en það er kýrskýrt að gerendur undir 18 ára aldri skilgreinast sem börn.
Þessar stúlkur eru nú á skilorði og ef þær læra ekki af þessu og brjóta af sér aftur kemur til refsingar. Hvað er svona óréttlátt við það?
Páll Geir Bjarnason, 15.12.2009 kl. 01:23
Ég efast stórlega um það að þær séu heima hjá sér núna alveg... ó fokk ég er komin á skilorð nú verð ég að hugsa minn gang og breyta lífi mínu... ég meina þetta hefur engar afleiðingar fyrir þær....ok allt í lagi ef þið viljið ekki senda þær í fangelsi, en allavega neyða þær til þess að borga skaðabætur. Allavega eitthvað sem fær þær til að taka einhverjum afleiðingum af þessu.... Ég meina segjum að fórnarlambið hitti þær niður í bæ, kringlunni eða what ever... Það er örruglega ógeðslegt, hún veit að þær rændu henni börðu hana í spað og það skiptir engu máli. Hvernig í ósköunum á hún að geta mætt þeim eftir svona meðferð fyrst frá þeim og svo frá dómstólum... Ef þetta væri einhver nákominn mér þá bara biðst ég innilegrar afsökunar en ég hugsa að ég gæti ekki hamið mig, ég myndi taka lögin í mínar hendur. Jafn ömurlegt og það er. Kannski er það dómsvaldið vill, mér sýnist allavega skilaboðin vera ef þið rænið þeim, takið þær upp í heiðmörk og berjið þær þangað til þær missa meðvitund þá gerist ekki neitt.
Fannar (IP-tala skráð) 15.12.2009 kl. 05:06
Ef Björn Bjarnason og Árni Matthiesen hefðu tekið HÆFI fram yfir flokksskýrteini í Sjálftökuflokknum væri þjóðin ekki í svona djúpum skít.
Dómskerfið á Íslandi er að vrða eins og í USA þar sem þeir ríku geta keypt sér síknu sbr. Baugsdóminn. Er Jón Ásgeir saklaust fórnarlamb eða hefur hann bara nógu mikið af peningum til að kaupa sér "sýknu"?
Þetta er bara eðlilegt framhald af einkavinavæðingu Sjálftökuflokksins þar sem siðblindir skíthælar með lögmannsréttindi taka við hver af öðrum.
Jón Steinar > Sveinn Andri > næsti skíthæll ???
Alli, 15.12.2009 kl. 08:52
Það er ekki langt síðan unglingar á Íslandi urðu SJÁLFRÁÐA 16 ára gamlir og þó að ég sé ekki gömul er ég ein af þeim. Ég var orðin móðir og húsmóðir 17 ára þannig að ég er ekki sammála því að þessar stúlkur séu BÖRN. Hvaða rugl er í ykkur???? Þá eru semsagt 17 ára BÖRN að taka bílpróf hér á landi !!! Þetta er ófyrirgefanlegt, og viðurstyggileg raunveruleikaskerðing dómara sýnir að hann er óhæfur í þetta starf. Man enginn eftir 14 ára BARNINU sem reyndi að drepa mann til að sjá hvernig það væri að drepa mann!?? Þetta BARN fékk 4 ára dóm og slapp út fyrir ári síðan, 19 ára gamall. Ég efast um að hann reyni aftur að drepa manneskju. Ef 17 ára unglingar eru enn BÖRN á Íslandi ætti að sjá til að þau hætti að aka bílum!!! Skaðabætur ættu að vera sjálfsagt mál. Er ekki búið að áfría dómnum til Hæstaréttar?
anna (IP-tala skráð) 15.12.2009 kl. 10:21
Þakka athugasemdir. Páll Geir er fylgjandi þessari stefnu sem er við lýði að gera ekki neitt og sjá til.....flýtur á meðan ekki sekkur. Varðandi glæpi í USA eins og komið var inná þá vita þeir sem vilja vita að virðingarleysi fyrir lögunum er miklu meira hér á landi. Sem ég sæi Bandarískan ungling berja löggu hehe hann gerði það bara einu sinni. Þakka Önnu fyrir gott innlegg og að sjá kjarna málsins. EKKI LEYFA NEINUM AÐ GRÆÐA Á GLÆPUM hvorki peningalega eða virðingarlega ef hægt er að orða það svo. Í dag þarftu að sögn að fremja yfir 30 innbrot sem þú næst fyrir og játar áður en kemur til greina að þú farir dag í fangelsi. Þú hefur frelsi til að stela. Minni líka aftur og aftur á hrinu vopnaðra bankarána sem voru hér í Reykjavík í hittifyrra ( þau voru 5 eða 6 ) og enginn.............endurtek enginn var dæmdur í fangelsi í einn einasta dag fyrir það...VOPNAÐ BANKARÁN og nei vinur minn við skiljum þig...þú hefur verið hálf blankur og þetta helvítis pakk sem vann í bankanum átti bara skilið að vera ógnað með hnífum og rifflum.
Þakka þessa umræðu og sýnist allur þorri fólks telja það réttlátt að glæpamenn borgi fyrir glæpi sína.
Tryggvi Marteinsson, 15.12.2009 kl. 18:20
Ég segi aldrei að ekki eigi að gera neitt. Einungis að meðan lögin skilgreina einstakling undir átján ára sem barn þá er ekki forsvaranlegt að beita fangelsisvist. Einhver önnur úrræði þarf en þau virðast ekki fyrir hendi hér.
Páll Geir Bjarnason, 16.12.2009 kl. 08:02
Þessi árás lagði líf þessarar stúlku í rúst, sem og systur hennar. Fjölskylda fórnarlambsins hefur gengið í gegnum helvíti eftir þessa fautalegu árás.
Dómurinn er að mínu mati fáránlegur fyrir svona alvarlegt brot.
Vissulega hafa þær hreint sakavottorð fyrir þessa árás. En þetta er ekki smá brot. Þetta er mannrán og alvarleg líkamsárás. Unglingur eða ekki .. þetta er grafalvarlegt afbrot.
Ég er undrandi yfir því að fórnarlambið fékk ekki skaða og miskabætur og hefðu þessar stúlkur átt að vera dæmdar á viðeigandi stofnun. Í x tíma. ... nú veit ég ekki nákvæmlega hvað þessar stofnanir heita en t.d eru úti á landi bæði heimili, sveitabæir fyrir vandræða/afbrotaunglinga.
Það hefði verið rétta lausnin. Ekki bara slegið á hendurnar á þeim og sleppt út .. á meðan fórnarlambið situr eftir með sárt ennið búið að leggja líf þess og fjölskyldunar í rúst ... þetta eru undarleg skilaboð út í samfélagið til fórnarlamba ofbeldis.
AceR, 16.12.2009 kl. 14:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.