28.janúar 2012 - Dómskerfið allt í molum.

Í dómi eftir dóm er refsing látin niður falla vegna þess að lögregla gerði mistök, lögregla var of lengi að veltast með málið eða af öðrum ástæðum. Þannig heldur þetta áfram ár eftir ár. Allir glaðir nema fórnarlömb glæpamannanna sem ganga lausir skælbrosandi og halda áfram á sömu braut. Glæpir borga sig nefnilega á íslandi.

Ef lögreglu tekst ekki að klúðra málum þá taka dómstólarnir við. Þeir dæma menn skilorðsbundið ( skilorð er ekki fangelsi ) þó um stórhættulega síbrotamenn sé að ræða sem hafa jafnvel brotið skilorð margoft. Það getur verið eðlilegt að dæma menn á skilorð við fyrsta brot og ef ekki er um ofbeldisverk að ræða. Ofbeldismaður á aldrei að komast undan fangelsisvist og auk þess á hann alltaf að greiða kostnaðinn af glæp sínum. Það er ekki eðlilegt að saklaust fólk eða fyrirtæki taki þátt í þeim kostnaði.

Við eigum langt í land. Dómar hér á landi eru ekkert í líkingu við það sem gerist í Evrópu eða Bandaríkjunum. Dómar hér eru eins og glæpamenn mundu óskar sér í undralandi.

Við þurfum að skipta út dómurum og við þurfum líka að breyta lögum. Það er forgangmál í þessu landi þar sem glæpir borga sig.


mbl.is Lögbrot í réttarsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tryggvi Marteinsson

Höfundur

Tryggvi Marteinsson
Tryggvi Marteinsson

Íslendingur - Reykvíkingur - Valsari ............Stórskemmtilegur gáfumaður með óteljandi áhugamál ! Er orðinn sannfærður um að sjálfstæðisflokkurinn er upphaf og endir óhamingju landsmanna. Mikilvægt að flokkurinn sá verði bannaður. Það eru mörg fordæmi fyrir slíku í lýðræðisríkjum sem eru að koma sér á lappirnar aftur og bendi á Þýskaland eftir stríð ( Nazistaflokkinn ) og austur Evrópuríkin eftir hrun ( kommúnistaflokkana) en ofantaldir flokkar réðu öllu og komu löndum sínum á hausinn. Það sama gerði sjálfstæðisflokkurinn hér viljandi eða af slysni. 

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Picture0018

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 497
  • Frá upphafi: 68895

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 459
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband