28.1.2012 | 09:22
28.janúar 2012 - Dómskerfið allt í molum.
Í dómi eftir dóm er refsing látin niður falla vegna þess að lögregla gerði mistök, lögregla var of lengi að veltast með málið eða af öðrum ástæðum. Þannig heldur þetta áfram ár eftir ár. Allir glaðir nema fórnarlömb glæpamannanna sem ganga lausir skælbrosandi og halda áfram á sömu braut. Glæpir borga sig nefnilega á íslandi.
Ef lögreglu tekst ekki að klúðra málum þá taka dómstólarnir við. Þeir dæma menn skilorðsbundið ( skilorð er ekki fangelsi ) þó um stórhættulega síbrotamenn sé að ræða sem hafa jafnvel brotið skilorð margoft. Það getur verið eðlilegt að dæma menn á skilorð við fyrsta brot og ef ekki er um ofbeldisverk að ræða. Ofbeldismaður á aldrei að komast undan fangelsisvist og auk þess á hann alltaf að greiða kostnaðinn af glæp sínum. Það er ekki eðlilegt að saklaust fólk eða fyrirtæki taki þátt í þeim kostnaði.
Við eigum langt í land. Dómar hér á landi eru ekkert í líkingu við það sem gerist í Evrópu eða Bandaríkjunum. Dómar hér eru eins og glæpamenn mundu óskar sér í undralandi.
Við þurfum að skipta út dómurum og við þurfum líka að breyta lögum. Það er forgangmál í þessu landi þar sem glæpir borga sig.
|
Lögbrot í réttarsal |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dómsmál | Breytt s.d. kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2012 | 17:16
27. janúar 2012. Leikritið hefst
Nú fara að detta inn dómar yfir þeim snillingum sem settu þjóðina á hausinn. Fyrsta leikritið er hér á ferð og þar má sjá að verjandi krefst sýknu en til vara skilorðsbundins dóms. Hvað með Saksóknarar ? Jú stóri brandarinn er að í dag krafðist saksóknari skilorðbundins dóms !!!!!!!! Saksóknari krefst ekki fangelsis yfir manni sem sakaður er um stórfelld svik og þjófnað. Hver er í hvaða klíku og hvernig væri nú að hausar fykju ?
Skömm að þessu kerfi okkar. Lögregla , dómstólar og allt heila klabbið verndar hvað annað. Skömm að þessu. Hafi saksóknari skömm fyrir og allir sem að málinu koma.
|
Óskýr ákæra og töf á rannsókn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dómsmál | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2012 | 16:59
26. janúar 2012 - Það má berja fólk til óbóta.
Þessi 18 ára krypplingur sem tekur flöskur og smallar á fólki og lemur annan og hoppar oná andlitinu á þeim þannig að hann nær sér sennilega aldrei þarf ekki að gjalda fyrir það. Þó var þetta kvikindi á skilorði vegna tveggja stórhættulegra líkamsárása þetta sama ár. Sem sagt fjórar stórhættulegar líkamsárásir og ekki einn dagur í fangelsi. Engin sekt og þarf ekkert að borga í vinnutapi fórnarlambanna og enn síður í kostnaði sjúkrahúsanna. Þá þarf hann ekki að borga krónu í lögreglukostnaði.
Sennilegur kostnaður af svona málum er milljónir eða og sennilegra tugir milljóna. Það eigum við að borga meðan fíflið gengur hlæjandi um göturnar og montar sig af afrekum sínum. Næsta líkamsárás sem þetta fremur er alfarið á ábyrgð dómarans í málinu. Hvaða aumingi var það ?
|
Skilorðsbundið fangelsi fyrir 2 líkamsárásir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dómsmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.1.2012 | 17:41
25. janúar 2012 - Enn hrósar íhaldið honum.
Ömmi ræður ekkert við sig. Íhaldið hampar honum sem stjórnmálaskörungi í hverju málinu á fætur öðru og hann gengst upp í því. Hann hefur svikið allt og alla sem hann hefur starfað fyrir og hafa stutt hann. Spái honum frama í sjálfstæðisflokknum með Guðfríði Lilju því þar eiga þau heima og með þessar hugsjónir munu þau ná langt innan þess flokks.
Ómerkilegt samt alltaf að bjóða sig fram undir fölskum forsendum. En einhvern veginn er íslenskum stjórnmálamönnum ekki sjálfrátt. Ómerkilegheitin ráða öllum gjörðum þeirra.
|
Gagnrýnir málflutning Ögmundar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
22.1.2012 | 13:22
22. janúar 2012 - Ásta hefur stuðning Flokksins.
|
Vill vantraust á Ástu Ragnheiði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.1.2012 | 16:26
21. janúar 2012 - Bið afsökunar.
Eygló Harðardóttir og Siv Friðleifsdóttir standa sig vel. Samkvæmar sér og rökfastar. Sú var tíðin þegar Eygló og Vigdís Hauks voru nýjar á þingi þá tók ég feil á þeim í umræðunni og hélt þetta væri sama manneskjan. Seinna var mér bent á þessi mistök og hef síðan séð að á milli þessara tveggja er himin og haf.
Ég vil biðja Eygló afsökunar á þessum mistökum mínum. Það er bein í nefinu á eyjapæjum.
Vigdís stendur og öskrar frá morgni til kvölds. Eygló vinnur vinnuna sína. Það mættu fleiri þingmenn vera eins og Eygló.
|
„Kannski föst í eigin sannfæringu“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.1.2012 | 15:32
21. janúar 2012 - Framsóknarbulla í dag.
Þetta er drengurinn sem sagðist vera vinstri maður og fór um allt kjördæmið og lét kjósa sig útá það. Um leið og hann kom inná þing fór hann í stjórnarandstöðu af því að þingmenn stjórnarliða þurftu að taka gríðarlega erfiðar ákvarðanir. Svo gekk hann formlega í framsóknarflokkinn ! en sat enn á þing vegna atkvæða vinstri manna. Þetta eru svik en hann sér það ekki.
Svo kemur hann hér og heimtar að fá að hafa íslenska krónu svo hægt sé að svívirða íslenska launamenn með því að fella gengið og fær fjárstyrki frá Bændasamtökunum og útgerðinni til að halda úti þeim svívirðilega áróðri. Grætur um leið að aðrir sem hafa aðrar skoðanir skuli fá styrki annars staðar frá. Tvöfeldni ? Nei þessi maður er verri en það. Hann kórónaði líf sitt í gær með því að koma í veg fyrir að dómstólar gætu rannsakað og yfirheyrt Geir Haarde. Hann beitti sér á Alþingi fyrir því að dómstóli yrði bannað að rannsaka fyrrverandi forsætisráðherra.
Þetta er spilltur maður á spena ríkisins.
|
„Gegndarlaus áróður ESB" |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.1.2012 | 10:48
21. janúar 2012 - Hreyfingin fær plús.
Hreyfingin ein flokka fær plús í þessu máli. Hafi einhver efast um samtrygginguna og spillinguna áður þá er sá efi farinn í dag. Þeir vernda hvorn annan meira að segja í glæparannsóknum! Opinberlega meina ég. Hvurslags glæpasamkoma er þarna niður á þingi ?
Ég er ekki alltaf sammála Hreyfingunni enda hefur hún stundum pissað utan í íhaldið. Það er aldrei gott. En í þessu máli fær hún plús.
|
Ekki aukið virðingu almennings |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
19.1.2012 | 21:11
19. janúar 2012 - Ögmundur formaður.
Ögmundur Jónason var einu sinni formaður BSRB. Þá líkaði honum lífið. Hann var aðal. Síðan fór Ögmundur á þing og þar var annar formaður sem heitir Steingrímur J. Það líkaði Ömma ekki. Ömmi vildi vera aðal. Síðan hefur Ömmi verið í stjórnarandstöðu. Ömmi hefur aldrei þolað að stýra ekki flokknum. Þegar Ömmi og hans fáu fylgismenn urðu undir í flokknum kölluðu þeir það foringjaræði.
Ögmundur taldi að þeir sem fengju færri atkvæði ættu að ráða för. Annað væri ofbeldi. Ömmi hefur síðan verið í fórnarlambahlutverkinu og það klæðir hann vel. Davíð Oddsson er ánægður með Ömma. Davíð hampar honum. Ömmi gengst upp í því. Það er gaman að fletta Mogganum á sunnudagsmorgni og sjá þar viðtöl við sig. Davíð segir Ömma tímamótastjórnmálamann. Ekki leiðinlegt. Davíð segir Ömma líka sjálfstæðan. Ömmi er glaður. Davíð hrósar honum. Íhaldið hrósar honum um allt þjóðfélag. Íhaldið er ánægðara með Ömma heldur en bæði Jóhönnu og Steingrím. Ömmi litli er að verða stór.
Draumurinn sem Ömmi litli átti í æsku er að verða að veruleika. Á öllum betri heimilum hér í bæ er honum hrósað og jafnvel heilsað á mannamótum. Ömmi finnur til sín. Ömmi er eitthvað.
|
Frávísunartillaga lögð fram |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
15.1.2012 | 17:10
15. janúar 2012 - Íhaldið óttast.
Það er von það fari um siðblindingjana í sjálfstæðisflokknum. Þeir eiga ekki landsdóm. Þeir hafa skipað alla dómara landsins nema þessa í landsdómi. Þar skipuðu þeir ekki alla. Þess vegna þora þeir ekki. Geir Haarde væri meiri maður ef hann sem foringinn segði að hann bæri ábyrgð. Nei þetta vælir yfir því að undirmenn hans voru ekki ákærðir líka eða bara. Það er mannsbragur á þessu.
Annars verður ekkert réttlæti úr þessu. Finnist hann sekur verður hann ekki sendur í fangelsi og alls ekki í einhverja áratugi. Það eina sem ég er hissa á er hvað íhaldið er opinberlega farið að standa með glæpamönnum. Þetta var alltaf undir rós í gamla daga. Kannski erfiðari tímar nú en áður ?
Ég vil minna á ýmis bifhjólasamtök sem hér lifðu góðu lífi og athugasemdarlaust í tíð Björns Bjarnasonar.
|
Ræða um frávísunartillögu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Tryggvi Marteinsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dómsmál
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sjónvarp
- Skák
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 48
- Sl. sólarhring: 57
- Sl. viku: 626
- Frá upphafi: 64040
Annað
- Innlit í dag: 36
- Innlit sl. viku: 467
- Gestir í dag: 29
- IP-tölur í dag: 29
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



bjarnihardar
gattin
finni
lillo
hreinn23
gunnola
karlremba
hildurhelgas
hordurhalldorsson
kristjan9
maggib
maggadora
barattan
rafng
zunzilla
omarbjarki
hallormur
